2020
Jump to navigation
Jump to search
Árþúsund: | 3. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Árið 2020 (MMXX í rómverskum tölum) er í gregoríanska tímatalinu hlaupár sem byrjar á miðvikudegi.
Fyrirhugaðir atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- Sumarólympíuleikarnir 2020 verða haldnir í Tókýó.
- Kýótóbókunin fellur úr gildi og Parísarsamkomulagið tekur við.
- Facebook áætlar að taka í notkun rafmyntina Libra.
- Dýrafjarðargöng verða tekin í notkun.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
Janúar[breyta | breyta frumkóða]
- 3. janúar – Íranski hershöfðinginn Qasem Soleimani var drepinn í drónaárás Bandaríkjahers á flugvöll í Bagdad.
- 5. janúar – Seinni umferð forsetakosninga fór fram í Króatíu. Sitjandi forseti landsins, Kolinda Grabar-Kitarović, bað ósigur gegn mótframbjóðanda sínum, fyrrum forsætisráðherranum Zoran Milanović.
- 8. janúar – 176 manns létust þegar Íransher skaut niður úkraínska farþegaflugvél eftir flugtak í Teheran í Íran.
- 11. janúar – Þing- og forsetakosningar fóru fram í Lýðveldinu Kína á Taívan. Tsai Ing-wen, sitjandi forseti landsins, vann endurkjör og flokkur hennar, Lýðræðislegi framfaraflokkurinn, vann aukinn þingmeirihluta.
- 14. janúar – Þrjú mjög stór snjóflóð féllu á Vestfjörðum með skömmu millibili rétt fyrir miðnætti. Tvö flóðanna féllu á Flateyri en eitt á Suðureyri. Mikið eignatjón varð en engin alvarleg slys urðu á fólki.
- 16. janúar – Mikhaíl Misjústín tók við embætti forsætisráðherra Rússlands eftir afsögn Dímítrí Medvedevs.
- 30. janúar – Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna faraldurs kórónaveirunnar 2019-nCoV frá Wuhan í Kína.
- 31. janúar – Bretland yfirgaf Evrópusambandið formlega.
Febrúar[breyta | breyta frumkóða]
- 8. febrúar – Þingkosningar fóru fram á Írlandi. Lýðveldisflokkurinn Sinn Féin vann í fyrsta sinn flest atkvæði af öllum flokkum.
- 5. febrúar – Öldungadeild Bandaríkjaþings kaus að sýkna Donald Trump Bandaríkjaforseta af ákæru um valdníðslu fyrir landsdómi Bandaríkjanna.
- 10. febrúar – Tónskáldið Hildur Guðnadóttir hlaut Óskarsverðlaun í flokki kvikmyndatónlistar fyrir tónlist í kvikmyndinni Joker. Hildur er fyrsti Íslendinga til að hljóta Óskarsverðlaun.
- 19. febrúar – Ellefu manns létu lífið í skotárás í Hanau í Þýskalandi.
- 28. febrúar - Fyrsti Íslendingurinn greinist með COVID-19 veiruna.
- 29. febrúar – Bandaríkjamenn undirrituðu samning við Talíbana í von um að binda enda á stríðið í Afganistan.
Mars[breyta | breyta frumkóða]
- 11. mars – Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti yfir heimsfaraldri vegna COVID-19.
- 13. mars - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnir viðtækt samkomubann vegna COVID-19 sem taka skuli gildi 16. mars.
Apríl[breyta | breyta frumkóða]
Maí[breyta | breyta frumkóða]
- 25. maí: Bandarískur blökkumaður að nafni George Floyd var kæfður til dauða í haldi bandarískra lögreglumanna í Minneapolis. Dauði hans hratt af stað öldu mótmæla gegn kynþáttabundnu ofbeldi lögreglumanna gegn blökkumönnum.
Júní[breyta | breyta frumkóða]
Júlí[breyta | breyta frumkóða]
Ágúst[breyta | breyta frumkóða]
September[breyta | breyta frumkóða]
Október[breyta | breyta frumkóða]
Nóvember[breyta | breyta frumkóða]
Desember[breyta | breyta frumkóða]
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 3. janúar – Qasem Soleimani, íranskur hershöfðingi (f. 1957).
- 10. janúar – Qaboos bin Said al Said, soldán af Óman (f. 1940).
- 12. janúar – Roger Scruton, breskur heimspekingur (f. 1944).
- 14. janúar – Rósa Ingólfsdóttir, íslensk leikkona, sjónvarpsþula og auglýsingateiknari (f. 1947).
- 21. janúar – Terry Jones, breskur gamanleikari (f. 1942).
- 26. janúar – Kobe Bryant, bandarískur körfuknattleiksmaður (f. 1978).
- 28. janúar – Sigurbergur Sigsteinsson, íslenskur íþróttamaður og -þjálfari (f. 1948).
- 31. janúar – Mary Higgins Clark, bandarískur rithöfundur (f. 1927).
- 5. febrúar – Kirk Douglas, bandarískur leikari (f. 1916).
- 25. febrúar
- Hosni Mubarak, fyrrum forseti Egyptalands (f. 1928).
- Ragnar Bjarnason, íslenskur söngvari (f. 1934).
- 4. mars – Javier Pérez de Cuéllar, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna (f. 1920).
- 8. mars – Max von Sydow, sænskur leikari (f. 1929).
- 17. mars – Betty Williams, norður-írskur friðarsinni og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1943).
- 20. mars – Kenny Rogers, bandarískur sveitasöngvari (f. 1938).
- 25. mars – Albert Uderzo, franskur myndasöguhöfundur (f. 1927).
- 9. maí – Little Richard, bandarískur söngvari og lagahöfundur (f. 1932).
- 11. maí – Jerry Stiller, bandarískur gamanleikari (f. 1927).
- 27. maí – Alfreð Þorsteinsson, íslenskur stjórnmálamaður og blaðamaður (f. 1944).
- 8. júní – Pierre Nkurunziza, forseti Búrúndí (f. 1964).