Justin Trudeau
Justin Trudeau | |
---|---|
Forsætisráðherra Kanada | |
Núverandi | |
Tók við embætti 4. nóvember 2015 | |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. desember 1971 Ottawa, Kanada |
Þjóðerni | Kanadískur |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi flokkurinn |
Maki | Sophie Grégoire (g. 2005) |
Börn | 3 |
Foreldrar | Pierre Trudeau og Margaret Sinclair |
Háskóli | McGill-háskóli, Háskólinn í bresku Kólumbíu, Háskólinn í Montréal |
Starf | Kennari, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Justin Trudeau (f. 25. desember 1971) er núverandi forsætisráðherra Kanada. Hann er meðlimur Frjálslynda flokksins í Kanada og er elsti sonur fyrrum forsætisráðherra Kanada, Pierre Trudeau.
Stefnumál og stjórnartíð[breyta | breyta frumkóða]
Meðal áherslumála Trudeau eru bætt samskipti við Sameinuðu þjóðirnar. Hann fagnar kjarnorkusamningi stórvelda við Íran og íhugar að taka upp stjórnmálasamband við landið. Trudeau hefur tilkynnt að Kanadamenn ætli að hætta þátttöku í lofthernaðinum gegn Íslamska ríkinu í Írak og Sýrlandi og hefur boðað að allt að 25.000 sýrlenskum flóttamönnum verði veitt hæli í Kanada árið 2015. [1]
Baráttan gegn loftslagsbreytingum er áherslumál Trudeau.
Trudeau vill að konur hafi frjálst val um fóstureyðingu og afglæpavæða kannabis. Ríkisstjórn Trudeau fékk því framgengt árið 2018 að neysla kannabisefna var gerð lögleg.[2] Hann vill auka réttindi innfæddra í Kanada og koma af stað rannsókn á fjölgun morða innfæddra kvenna.[3]. Hann skilgreinir sig sem feminista. [4]
Vinsældir Trudeau hafa beðið hnekki í Kanada í kjölfar hins svokallaða SNC-Lavalin-hneykslismáls árið 2019. Trudeau er sakaður um að hafa beitt Jody Wilson-Raybould, þáverandi dómsmálaráðherra og ríkissaksóknara landsins, óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að fella niður ákæru gegn verktakafyrirtækinu SNC-Lavalin, sem sakað er um að greiða mútufé til yfirvalda Líbíu á stjórnartíð einræðisherrans Muammar Gaddafi. Í ágúst 2019 úrskurðaði siðanefnd að Trudeau hefði brotið siðareglur með afskiptum sínum af málinu. Trudeau sagðist sætta sig við niðurstöðuna þótt hann væri henni ekki sammála og viðurkenndi að hann og ráðgjafar hans hefðu haft áhyggjur af mögulegum afleiðingum sem dómur gegn SNC-Lavalin gæti haft fyrir efnahag Kanada.[5][6][7]
Í þingkosningum sem fóru fram 21. október 2019 tapaði Frjálslyndi flokkurinn þingmeirihluta sínum en var þó áfram stærsti flokkurinn á kanadíska þinginu. Trudeau varð áfram forsætisráðherra eftir kosningarnar en leiðir minnihlutastjórn á öðru kjörtímabili sínu.[8]
Störf og einkalíf[breyta | breyta frumkóða]
Trudeau hefur starfað sem kennari, leikari, þjálfari og verkfræðingur. Trudeau er giftur Sophie Grégoire og saman eiga þau þrjú ung börn. Hann er með húðflúr af hrafni á vinstri handlegg sem er innblásið af menningu frumbyggja á Haida Gwaii-eyjum.
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ „Breyttar áherslur í Ottawa“. RÚV. 9. nóvember 2015. Sótt 17. október 2018.
- ↑ Þórgnýr Einar Albertsson (16. október 2018). „Kannabis löglegt í Kanada á morgun“. Fréttablaðið. Sótt 17. október 2018.
- ↑ „Hver er Justin Trudeau?“. Vísir. 21. október 2015. Sótt 17. október 2018.
- ↑ https://twitter.com/JustinTrudeau/status/646103864454713344
- ↑ Pálmi Jónasson (25. ágúst 2019). „Spillingarmál skaðar ímynd Trudeau“. RÚV. Sótt 1. september 2019.
- ↑ „Trudeau braut siðareglur“. mbl.is. 15. ágúst 2019. Sótt 1. september 2019.
- ↑ Arnar Þór Ingólfsson (7. mars 2019). „Trudeau viðurkennir að hafa gert mistök“. mbl.is. Sótt 1. september 2019.
- ↑ Ævar Örn Jósepsson (22. október 2019). „Trudeau tapar fylgi en sigrar þó“. RÚV. Sótt 22. október 2019.
Fyrirrennari: Stephen Harper |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |