Filippus prins, hertogi af Edinborg

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jump to navigation Jump to search
Filippus prins, hertogi af Edinborg
Filippus prins, hertogi af Edinborg
Filippus árið 2015.
Skjaldarmerki Filippusar
Fæddur 10. júní 1921 (1921-06-10) (99 ára)
Korfú, Grikklandi
Þjóðerni Bretland breyta
Starf/staða aristocrat breyta
Titill Hertogi breyta
Trú Enska biskupakirkjan
Maki Elísabet 2. Bretadrottning
Börn Karl, Anna, Andrés, Játvarður
Foreldrar Andrés prins af Grikklandi og Danmörku & Alice af Battenberg
Háskóli Gordonstoun breyta
Verðlaun Grand Cross of the Legion of Honour breyta

Filippus prins, hertogi af Edinborg (fæddur sem Filippus prins af Grikklandi og Danmörku[1] 10. júní 1921), er eiginmaður Elísabetar 2., drottningar Bretlands og breska samveldisins.

Filippus er meðlimur Schleswig-Holstein-Sonderburg-Glücksburg-konungsættarinnar og fæddist inn í grísku og dönsku konungsfjölskyldurnar. Hann er sonarsonur Georgs 1. Grikklandskonungs og sonarsonarsonur Kristjáns 9. Danakonungs. Hann fæddist í Grikklandi en fjölskylda hans var gerð brottræk úr landinu þegar hann var ungbarn. Filippus hlaut menntun í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi og gekk í breska sjóherinn árið 1939, þá 18 ára að aldri. Í júnímánuði árið 1939 hóf hann bréfasamskipti við frænku sína, hina þrettán ára gömlu Elísabetu prinsessu, sem hann hafði fyrst kynnst árið 1934. Í seinni heimsstyrjöldinni barðist Filippus með breska flotanum á Miðjarðarhafi og Kyrrahafi.

Eftir að stríðinu lauk fékk Filippus leyfi frá Georg 6. konungi til að kvænast Elísabetu. Áður en trúlofun þeirra var formlega kynnt í júlí árið 1947 afsalaði hann sér öllum grískum og dönskum aðalstitlum og gerðist breskur ríkisborgari. Hann tók upp ættarnafnið Mountbatten, sem afi hans og amma í móðurætt höfðu borið. Þau Elísabet gengu í hjónaband þann 20. nóvember 1947. Stuttu fyrir brúðkaupið var hann gerður barón af Greenwich, jarl af Merioneth og hertogi af Edinborg. Filippus hætti virkri herþjónustu þegar Elísabet varð drottning árið 1952 og varð formlega breskur prins árið 1957.

Filippus á fjögur börn með Elísabetu: Karl, Önnu, Andrés og Játvarð. Hann á átta barnabörn og sex barnabarnabörn. Samkvæmt tilskipun sem gefin var út árið 1960 er afkomendum Filippusar og Elísabetar sem ekki bera konungstitla leyft að nota ættarnafnið Mountbatten-Windsor.

Filippus er kunnur íþróttaunnandi og kom að þróun vagnreiða í hestaíþróttum. Hann er meðlimur og formaður rúmlega 780 samtaka og er formaður verðlaunanefndar hertogans af Edinborg (Duke of Edinburgh's Award). Filippus er elsti karlmeðlimur bresku konungsfjölskyldunnar í sögu ríkisins og hefur verið maki bresks þjóðhöfðingja lengur en nokkur annar. Filippus lét af skyldum sínum sem prins þann 2. ágúst 2017 og settist í helgan stein.

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. Canadian Heritage; Daily Telegraph; Sky News; Website of the Royal Family, sótt 15. febrúar 2018